Innlent

Ók á tólf ára dreng í Hlíðunum og stakk af

visir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leiltar nú að ökumanni sem ók á gangandi tólf ára pilt á gatnamótum Stigahlíðar og Bogahlíðar laust upp úr klukkan níu í gærkvöldi. Pilturinn segist hafa verið á leið yfir gatnamótinn þegar fólksbíl bar að og ók á hann þannig að hann kastaðist í götuna, en ökumaðurinn hafi stungið af.

Pilturinn slasaðist ekki alvarlega, en hann er tognaður á fæti og marinn á mjöðm, og þurfti að leita aðhlynningar á slysadeild. Ekki kemur fram í skeyti lögreglunnar hvort pilturinn gat gefið greinargóða lýsingu á bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×