Lífið

Ofurmamma brýtur internetið

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ótrúlegir móðurhæfileikar hinnar kanadísku Corry White hafa vakið mikla athygli í netheimum.
Ótrúlegir móðurhæfileikar hinnar kanadísku Corry White hafa vakið mikla athygli í netheimum. Mynd/Skjáskot
Myndband af sannkallaðri ofurmömmu að gera börnin sín fjögur klár fyrir svefninn hefur slegið í gegn í netheimum. Síðan hin kanadíska móðir, Corry Whyte, deildi myndbandinu á Facebook á fimmtudaginn hefur verið horft á það alls 36 milljón sinnum.

Corry og eiginmaður hennar, Dan, eiga saman fjögur börn, hina tveggja ára gömlu Emily og þríburana Jackson, Olivia og Levi sem eru átta mánaða. Eins og gefur að skilja getur fjölskyldulífið verið snúið en í samtali við fréttastofu ABC segir Corry að aðalvandamálið sé að finna jafnvægi á milli þarfa hinnar tveggja ára gömlu Emily og þarfa þríburanna.

„Þau vilja öll fá athygli þína en á sama tíma eru þau öll á leiðinni í mismunandi áttir,“ sagði Corry.

Myndbandið sem sjá má hér fyrir neðan sýnir einstaka hæfileika Corry í því að koma börnum sínum í háttinn en á nokkrum mínútum finnur hún tíma til þess að klæða þau öll í náttföt og kitla þau aðeins, svona rétt fyrir svefninn.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli og þeir sem skilja eftir athugasemdir við það finnst greinilega afar mikið koma til móðurhæfileika Corry. Hún er þó ekki endilega á sama máli og segist ekki hafa gert neitt sérstakt.

„Í mínum augum er hver einasta mamma ofurmamma,“ sagði Corry.

Mom vs Triplets + Toddler!A must watch! .. Give super mom a share! Being Mommy Dan Gibson Ellen MommyPage Parenthood Being Daddy Parenting.com Twin Magazine Parent Life Network ellentube

Posted by The Baby Gang on Thursday, 4 February 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×