Lífið

Ofurfyrirsætu finnst kalt á Íslandi

Chrissy Teigen er norsk í aðra ættina og auk þess að vera fyrirsæta er hún sjónvarpskokkur.
Chrissy Teigen er norsk í aðra ættina og auk þess að vera fyrirsæta er hún sjónvarpskokkur. Vísir/Getty
Chrissy Teigen, fyrirsæta og eiginkona söngvarans John Legend er á Íslandi. 

Teigen setti mynd af sér á Instagram í dag þar sem hún er að spóka sig við Reykjavíkurhöfn. Hún er þó ekki eins hrifin af veðurblíðunni eins og íbúar höfuðborgarsvæðisins þar sem hún klæddist stórri úlpu og skrifar undir myndina. "Staðreynd. Ísland er kalt."

Teigen starfar sem fyrirsæta og skaust upp á stjörnuhimininn er hún sat fyrir á forsíðu tímaritsins Sport Illustrated árið 2010. Hún á norskan föður og tælenska móður en hefur verið búsett vestanhafs alla sína ævi. 

Teigen giftist söngvaranum John Legend í fyrra og parið hefur vakið athygli fyrir einstaka smekkvísi á rauða dreglinum. Hún hefur setið fyrir í herferðum fyrir stórfyrirtæki á borð við Nike, Gillette, Olay og Skullcandy. 

Auk þess að sitja fyrir hefur Teigen verið að reyna fyrir sér í sjónvarpi sem gestastjórnandi í þáttum á E!, TMZ og Mtv. Einnig er hún rithöfundur og sjónvarpskokkur þar sem hún hefur stjórnað þáttunum, Chrissy Teigen's Hungry og Cookies and Cocktails. 

Hún lék hlutverk í tónlistarmyndbandi eiginmanns síns við lagið All of Me en samband þeirra er innblástur lagasmíðana. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×