Innlent

Óformlegur fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga í gær skilaði engu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Verkfallið hefur mikil áhrif á starfsemi spítala og heilsugæslustöðva, segir Ólafur.
Verkfallið hefur mikil áhrif á starfsemi spítala og heilsugæslustöðva, segir Ólafur. Vísir/Vilhelm
Óformlegur fundur átti sér stað á milli samninganefnda hjúkrunarfræðinga og ríkisins í gær. Ekkert þokaðist í átt að samkomulagi á þeim fundi. Verkfall hjúkrunarfræðinga hófst á miðnætti.



Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir að fyrsta nótt verkfallsins hafi gengið stóráfallalaust fyrir sig. Áttatíu undanþágubeiðnir höfðu verið samþykktar til viðbótar við neyðarmönnunarlista velferðarráðuneytisins áður en verkfallið skall á.



„Eftir því sem ég kemst næst þá gekk nóttin bara stóráfallalaust fyrir sig en þegar í gærkvöldi höfðum við samþykkt áttatíu undanþágubeiðnir til viðbótar við þá öryggislista sem liggja fyrir,“ segir hann.



Hvaða deildir og sjúkrahús voru það sem fóru fram á þessar umfram undanþágur?



„Þetta voru sjúkrahús víðs vegar um landið og Landspítalinn líka. Að hluta til voru þetta stöður sem hafði hreinlega láðst að setja inn á öryggislistann, margir stjórnendur, en einnig þurftum við að bregðast við ástandinu á sumum deildum þar sem þurfti að bæta við hjúkrunarfræðingum til að sinna þeirri þjónustu sem þurfti að sinna,“ segir Ólafur



Þrátt fyrir auknar undanþágur er staðan ekki góð á spítölum landsins. Verkföllin hafa mikil áhrif á starfsemina.



„Og ekki síst heilsugæsluna þar sem þarf að fresta ung- og smábarnavernd og vaktþjónustu hjúkrunarfræðinga og allri skólahjúkrun,“ segir Ólafur



Enginn fundur hafði verið boðaður í deilunni í gær en Ólafur segir að óformlegur fundur hafi farið fram á milli deiluaðila. Ekki hefur verið boðað til formlegs fundar í dag.



„Það var óformlegur fundur í gær með samninganefnd ríkisins en við þokuðumst ekkert nær samkomulagsátt á þeim fundi,“



Verkfallið sem skall á á miðnætti nær til allra hjúkrunarfræðinga á landinu. Neyðarmönnun gerir ráð fyrir um fimm hundruð hjúkrunarfræðingum en auk þess hefur áðurnefnd undanþáguheimild fyrir áttatíu stöðugildum verið samþykkt af félagi hjúkrunarfræðinga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×