Öflugra viðbragð borgar sig Guðjón Sigurbjartsson skrifar 12. janúar 2017 07:00 Fjölgun fólks fylgir að öðru jöfnu fjölgun slysa, sjúkdómstilfella, leita og björgunaraðgerða þar sem sérhæfingar er þörf. Bættur lífsstíll og forvarnir draga aftur á móti verulega úr. Þannig hefur bílslysum fækkað með bættu vegakerfi og ökukennslu, sjóslysum með bættum skipum og skipulagi sjósóknar og alvarlegum sjúkdómum með bólusetningu og betri lyfjum. Heilsa batnar og meðalævi lengist. Mikilvægi góðs lífsstíls og öflugra forvarna verður seint ofmetið en þegar út af bregður skipta rétt, fumlaus viðbrögð miklu máli. Skoðum þetta nánar.Núverandi viðbragðsaðilar, yfirlit - Neyðarlínan rekur neyðarvaktstöðvar með samræmda neyðarnúmerinu 112 og sér um almenna svörun neyðarboða, fjarskiptaþjónustu og skyldan rekstur fyrir land og mið. Aðaleigendur eru ríki og Reykjavíkurborg. - Rauði krossinn á Íslandi á og rekur sjúkrabifreiðar og tilheyrandi tækjabúnað til sjúkraflutninga fyrir landið allt, en ríkið greiðir obbann af kostnaðinum. Sjúkrabílar í rekstri eru 77 á 40 stöðum. Þar af er Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) með 19 sjúkrabíla á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, með samtals 30 manna áhöfn. Árlegur fjöldi útkalla er um 32 þúsund, þar af um 26 þúsund hjá SHS. Sjaldnast er um bráðavanda að ræða heldur flutninga sjúkra á milli staða. Auk reksturs sjúkrabíla sinnir Rauði krossinn fjöldahjálp og sálfélagslegu hjálparstarfi í kjölfar slysa og náttúruhamfara. - Sveitarfélögin, sér eða í samlögum, reka 44 brunavarnir eða slökkvilið. Sex slökkviliðanna annast sjúkraflutninga en heilbrigðisstofnanir gera það annars. Slökkviliðsmenn eru víða einnig sjúkraflutningamenn og sumir þeirra lærðir bráðatæknar (paramedics) sem geta veitt fyrstu hjálp.5) - Landhelgisgæslan (LHG)er með þrjár þyrlur, eina flugvél og varðskip sem einnig er notað við leit og björgun.4) Þyrluútköll eru um 135 á ári. Þyrlur LHG eru staðsettar í Reykjavík og að jafnaði ein til tvær tiltækar áhafnir. Í áhöfn á þyrlum LHG eru að jafnaði 5 menn, þ.e. flugstjóri, flugmaður, sigmaður, spilmaður og læknir. Flugvélar LHG koma að leit og björgun á sjó og landi og varðskipin á sjó. - Mýflug á Akureyri annast almennt sjúkraflug sem að jafnaði eru 1-2 á dag. - Landsbjörg vinnur að slysavörnum, leit og björgun. Samtökin hafa 18.000 sjálfboðaliða sem starfa í 99 björgunarsveitum, 33 slysavarna- og kvennadeildum og 54 unglingadeildum, skipt á 18 landsvæði. - Læknar, heilsugæslur og bráðamóttökur heilbrigðiskerfis landsins taka við þar sem þörf er á. - Samhæfingarstöð almannavarna tekur til starfa í vissum tilvikum. Fleiri aðstoða fólk í neyð svo sem líknarfélög, hjálparstarf, lögregla, Vegagerðin, Isavia, ráðuneyti og fólk á vettvangi. Miðað við hversu margir og mismunandi aðilarnir eru virkar kerfið furðu vel, meðal annars vegna þess hversu margir eru tilbúnir til að leggja mikið á sig til að hjálpa öðrum. Með faglegri og markvissari starfsháttum má þó bæta viðbrögð í neyðartilvikum og það meira að segja borgar sig.Nýtt og betra skipulag Sett verði upp viðbragðsmiðstöð í hverjum landsfjórðungi fyrir sjúkraflutninga, slökkvilið, leit og björgun. Hver viðbragðsmiðstöð hafi sjúkrabíla, slökkvibíla, leitarbíla, þyrlu ásamt tilheyrandi búnaði og starfsliði. Með þyrluflugmanni í útköll getur farið nánast sama lið og í útkall sjúkrabíls. Liðsmaður Landsbjargar á staðnum verði tengiliður björgunarsveita svæðisins. Viðbragðsmiðstöðvarnar tengist vel aðalsjúkrahúsi viðkomandi heilbrigðisumdæmis. Skref í þessa átt hefur verið stigið í Árborg með tilkomu Björgunarmiðstöðvarinnar. Sjúkraflutningamenn ganga stundum vaktir á HSU og koma til aðstoðar ef þörf gerist. Hver viðbragðsmiðstöð hafi útstöðvar eftir þörfum, samanber staðsetningu slökkviliða nú. Hver útstöð hafi slökkvibíl og tilheyrandi búnað en sumar einnig sjúkrabíl og starfsfólk, samanber skipulag SHS og víðar. Með því að nota þyrlur oftar í stað sjúkrabíla er talið að viðbragðstími styttist í yfir 20% tilvika. Athugun á Suðurlandi sýnir að einungis 2 af 56 sjúklingum með brátt hjartadrep og ST-hækkun voru fluttir með þyrlum1). Flutningstími með sjúkrabílum er oft of langur í þessum tilvikum en ef þyrla væri til staðar mætti stytta viðbragðstímann verulega. Reyndur fagaðili í sjúkraflutningum giskar á að sjúkraþyrla staðsett á Suðurlandi muni bjarga að minnsta kosti fimm mannslífum á ári og bæta mörg önnur. Mest er þörfin á Suðurlandi en einnig er tímabært að staðsetja sjúkraþyrlur á Austurlandi, Akureyri og Vesturlandi. Aukin notkun sjúkraþyrlna minnkar þörf fyrir flugvöll í nálægð spítala þó almennt sjúkraflug verði áfram til staðar. Þær 9.000 ferðir sem áætlaðar eru á nýja Landspítalann á sólarhring, verða flestar með bílum, þar af 100-200 í sjúkrabílum. Því er nærtækast að staðsetja nýja Landspítalann með tilliti til framtíðarumferðar á höfuðborgarsvæðinu. Brunavarnir og slökkvilið verði rekin af samlögum þeirra sveitarfélaga sem viðbragðsmiðstöðin þjónar en ekki einstökum sveitarfélögum. Stofnsetja þarf „Viðbragðsmiðstöð Íslands“ eða aðlaga Samhæfingarstöð Almannavarna til að halda utan um viðbragðsmál á landinu.Breytingarnar borga sig Þær breytingar sem hér eru lagðar til borga sig ekki aðeins tilfinningalega og fjárhaglega fyrir þá sem bjargast úr helju og öðlast betra líf sem og aðstandendur þeirra heldur er augljós fjárhagslegur ávinningur fyrir samfélagið allt. Kostnaður við hentuga sjúkraþyrlu ásamt 5 manna áhöfn er á bilinu 500-700 milljónir króna á ári 2 og 4). Með samnýtingu starfsmanna viðbragðsmiðstöðvar er viðbótarkostnaður lægri eða á bilinu 400-500 milljónir kr. á ári. Ef reiknað er með að þyrlur komi á Suðurland, Austurland, Norðurland og Vesturland en LHG fækki um eina á móti, er heildarkostnaður um 1,5 milljarðar kr. á ári. Í útreikningum um hagkvæmni samgöngubóta er miðað við að verðmæti hvers mannslífs um 500 milljónir kr.3) Ef þyrluvæðingin bjargar sem svarar 10 lífum árlega gerir það 5 milljarða kr. Ef rekstur hverrar viðbragðsstöðvar bætir 500 milljónir kr. við núverandi kostnað og þær verða fjórar, er fjárhagslegur ávinningur nettó um 3 milljarðar kr. árlega. Við þetta má bæta ávinningi vegna þeirra sem fá betri bót meina sinna, mögulegt hagræði af betri staðsetningu flugvallar og sjúkrahúss leikur á tugum milljarða, tryggari ímynd Íslands sem ferðamannalands og tilfinningalegum ávinningi allra hlutaðeigandi. Í heild mun ávinningur af ofangreindum breytingum nema nokkrum milljörðum, jafnvel tugum milljarða kr. á ári, auk þess sem þær eru ímyndarlega og tilfinningalega ómetanlegar. Hér hefur verið bent á gríðarlega mikilvægar og hagstæðar endurbætur á starfsemi viðbragðsaðila á Íslandi. Til að skoða þetta nánar þarf að setja saman hóp fagfólks. Greina þarf kosti og galla, kostnað og ábata við mismunandi útfærslur. Þetta má ekki dragast því þetta er jákvætt og mikilvægt mál í alla staði.Tilvísanir: 1. Björn Gunnarsson‚ barna-, svæfinga- og gjörgæslulæknir - Um sjúkraflug 2. Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi - Skoða kaup á sjúkraþyrlu sem staðsett yrði á Suðurlandi 3. Mannvit – Aðferðir við að meta kostnað umferðarslysa og virði lífs – Október 2014 4. Landhelgisgæslan (LHG) – Samtal greinarhöfundar við starfsmann. 5. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) - Samtal greinarhöfundar við starfsmann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar