Innlent

Öflug hagsmunasamtök verða enn öflugri

Heimir Már Pétursson skrifar
Öflugustu samtök í íslensku atvinnulífi voru formlega stofnuð í dag þegar Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslustöðva runnu saman í eitt. Stóru fisksölufyrirtækin boða inngöngu sína í samtökin sem munu þá ná til veiða, vinnslu og markaðssetningar.

Samband fiskveiða og vinnslu hefur vaxið mikið á undanförnum áratugum og með samþjöppun fyrirtækja í greininni eru skip og vinnslufyrirtæki ýmist í eigu sömu aðila eða tengjast nánum böndum. Bæði Samtök fiskvinnslustöðva og LÍÚ hafa alla tíð verið áhrifarík samtök í íslensku þjóðlífi og og öflugir þrýstihópar á stjórnmálamenn og flokka.

Sameinuð verða samtökin því mjög sterk en þau höndla líka með stærstu og verðmætustu auðlind landsins sem verður að söluvöru í 47 löndum í heiminum. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sagði á stofnfundinum að eðlilega hefði verið tekist á um málefni þessarar auðlindar undanfarin 30 ár.

„Ef fólk hefur ekki skoðanir á grundvallaratvinnuvegi þjóðar sinnar þá er eitthvað að. Annað sem gæti verið skýring að einhverju leyti er það að hagsmunasamtökin sem talað hafa fyrir þessari grein hingað til hafa verið að horfa á ofboðslega þröngan vinkil þegar greinin er skoðuð í heild. Þau hafa einbeitt sér að afmörkuðum hagsmunum og þau hafa beitt sér af gríðarlegri hörku,“ segir Kolbeinn.

Menn yrðu hins vegar að átta sig á að sjávarútvegurinn spannaði óravítt svið og taka þyrfti tillit til margra þátta og mismunandi hagsmuna. Til að mynda liggur fyrri að stóru markaðs- og sölufyrirtækin munu ganga til liðs við hin nýju samtök.

Fyrsti formaður nýju samtakanna segist einmitt ætla að stuðla að skilningi á þessum ólíku hagsmunum í störfum sínum.

„En ég held að ný samtök hafi alla burði til þess að vinna betur saman. Fyrirtækin tengjast betur og það eru meiri samskipti. Og þannig held ég að við getum gert meiri verðmæti úr fiskafurðunum okkar heldur en nú er og það er til heilla fyrir íslenska þjóð,“ segir hinn nýkjörni formaður SFS Jens Garðar Helgason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×