Innlent

Ofbeldisbrotum fækkar á milli ára á Suðurnesjunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru ofbeldisbrot á fyrstu níu mánuðum ársins samtals 72 í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Á sama tíma árið 2013 voru þau 100 talsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Líkamsárásum fækkaði milli ára úr 73 málum í 57.

Málum er flokkast undir meiri háttar líkamsárás fækkaði úr fimmtán í fjögur og stórfelldum líkamsárásum fækkaði úr tólf í tíu.

Eitt af áhersluverkefnum lögreglunnar á Suðurnesjum í Ársáætlun 2014 er fækkun ofbeldisbrota m.a. með öflugu eftirliti, sýnileika og forvarnarstarfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×