Innlent

Ófaglærðir leiðsögumenn að störfum

Sveinn Arnarsson skrifar
Fagmennska innan stéttarinnar verður að aukast og lögverndun starfsheitisins er liður í því að mati Félags leiðsögumanna.
Fagmennska innan stéttarinnar verður að aukast og lögverndun starfsheitisins er liður í því að mati Félags leiðsögumanna. fréttablaðið/vilhelm
Fjöldi fagmenntaðra leiðsögumanna á Íslandi hefur tæplega tvöfaldast frá hruni. Samt sem áður starfa of margir hér á landi við leiðsögn sem búa ekki yfir menntun til þess og fjöldi fyrirtækja reiðir sig á ómenntaða leiðsögumenn. Laun fagmenntaðra leiðsögumanna eru hræðileg að mati stjórnarmanns í Félagi leiðsögumanna.

Árið 2008 voru í Félagi leiðsögumanna 485 fagmenntaðir leiðsögumenn en eru nú rúmlega 900 og hefur fjölgað um 74 frá áramótum.

Kári Jónasson
Kári Jónasson, stjórnarmaður í Félagi leiðsögumanna, segir ótrúlegar sögur af bæði erlendum leiðsögumönnum, sem illa eru að sér um staðhætti, og ómenntuðum íslenskum leiðsögumönnum hafa heyrst síðustu misseri. Miklu máli skiptir að ákveðin þekking sé til staðar og öryggi ferðamanna tryggt. „Það skiptir miklu máli að sýna fagmennsku og við viljum að leiðsögumenn þekki landið, fari um það af virðingu og sinni öryggishlutverki sínu. Hingað koma erlendir leiðsögumenn sem gera ekki greinarmun á helstu jöklum, ám og fossum og sum fyrirtæki reiða sig á ómenntaða leiðsögumenn,“ segir Kári.

Kári telur íslenska ferðaþjónustu breytast hratt í átt að því að veita starfsfólki heilsársatvinnu. Hér áður fyrr hafi menn hlaupið í störfin á sumrin en æ fleiri kjósa að starfa við ferðaþjónustu allt árið um kring. „Nú standa yfir kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins sem hafa staðið yfir í marga mánuði. Við höfum barist fyrir því að gera laun leiðsögumanna þannig að hægt sé að starfa við það allan ársins hring. Sífellt fleiri leiðsögumenn starfa allt árið um kring og okkar samningaviðræður beinast að því að gera þeim það kleift. Mánaðartaxti nú er um 270 þúsund sem er fyrir neðan allar hellur og flestir leiðsögumenn með háskólamenntun á einn eða annan hátt,“ segir Kári.

Markmið leiðsögumannafélagsins er að fá lögverndun á starfsheitið svo ákveðin fagmennska sé tryggð í faginu. „Það er mjög mikilvægt að fá lögverndun á starfsheitið og ákveðin trygging að einungis menntaðir einstaklingar geti kallað sig leiðsögumenn. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á sig mikla vinnu við að setja saman frumvarp sem hann lagði, með þingmönnum allra flokka, fyrir þingið nú í vor. Vegna anna verður það ekki að lögum nú en vonandi verður frumvarpið tekið fyrir á næsta þingi,“ segir Kári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×