Erlent

Nýtti miða á fyrsta farrými til að borða frítt í eitt ár

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Maðurinn nýtti sér smugu í kerfinu og borðaði frítt í næstum heilt ár.
Maðurinn nýtti sér smugu í kerfinu og borðaði frítt í næstum heilt ár. MYND/AFP
Kínverskur karlmaður nýtti sér þá möguleika sem fylgja því að eiga flugmiða á fyrsta farrými og borðaði frítt í heilt ár. Hann bókaði miða á fyrsta farrými hjá flugfélaginu China Eastern Airline og komst þannig inn í biðsalinn sem eigendum slíkra miða er boðið til. Frá þessu er sagt á vefsíðu Gizmodo.  

Þar gat hann borðað eins og hann lysti af ljúffengum mat. En í stað þess að fara í flugið eftir að hann hafði lokið við að borða breytti hann dagsetningu flugsins og fór heim til sín. Hann kom svo aftur daginn eftir og gerði það sama, borðaði og breytti dagsetningu flugsins.

Á einu ári breytti hann flugmiðanum 300 sinnum og því borðaði hann ókeypis máltíð meiri hluta ársins. Það má segja að maðurinn hafi svo sannarlega nýtt sér smugu sem var í kerfinu til fulls.

Þegar flugfélagið fór að skoða það af hverju hann hefði breytt miðanum þetta oft afpantaði hann flugmiðann og fékk hann flugmiðann endurgreiddann að fullu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×