Tónlist

Nýtt myndband frá Bang Gang

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Út er komið nýtt myndband frá Bang Gang en það er við lagið Sabazios O. Lagið er af nýrri plötu Bang Gang, The Wolves Are Whispering sem kom út á dögunum. 

Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir leika aðalhlutverkin í myndbandinu. Þá er þetta eina myndbandið af nýju plötunni þar sem Barða Jóhannssyni bregður fyrir í.

Máni Sigfússon tekur upp og leikstýrir myndbandinu. 



Tengdar fréttir

Hefði ekki getað gert neitt betur

Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson sendi á dögunum frá sér fjórðu breiðskífu Bang Gang, The Wolves Are Whispering.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×