Tónlist

Nýtt myndband frá Ásgeiri Trausta

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Ásgeir Trausti við tökur á myndbandinu í New York.
Ásgeir Trausti við tökur á myndbandinu í New York. Mynd/Guðmundur Kristinn Jónsson
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti hefur sent frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið King And Cross og var það frumsýnt á vefsíðu NPR fyrir skömmu, en hér að neðan má sjá myndbandið.

Bandaríski leikstjórinn Phil Pinto leikstýrir myndbandinu, sem er tekið upp í New York í byrjun júlí. Dansararnir í myndbandinu eru frá New York City Ballet. Það tók einn dag að taka upp myndbandið og tók vinnslan svo nokkrar vikur.

Í haust fer Ásgeir í sitt lengsta tónleikaferðalag um Bandaríkin til þessa, eða í um mánaðarlangt tónleikaferðalag og kemur meðal annars fram á Life is Beautiful-tónlistarhátíðinni í Las Vegas, þar sem listamenn á borð við Foo Fighters, Kanye West og Lionel Richie koma fram á. Þá kemur hann fram á Treasure Island-tónlistarhátíðinni í San Francisco og þar koma einnig fram Massive Attack, Outkast og Zedd.

Hér eru þær borgir sem Ásgeir heimsækir:

3. október - New York

5. október - Washington

6. október - New York

7. október - Montreal

8. október - Toronto

10. október - Indianapolis

11. október - Madison

12. október - Chicago

14. október  Denver

17. október - Los Angeles

19. október - San Francisco

21. október  Seattle

22. október - Portland

24. október - Salt Lake City

25. október - Las Vegas

26. október - San Diego

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá gerð myndbandsins en þær eru teknar af Guðmundi Kristni Jónssyni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×