Tónlist

Nýtt lag með Bubba: Platan er bara unnin með konum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bubbi gefur út nýja plötu.
Bubbi gefur út nýja plötu. vísir
„Ný plata er að koma út, hún heitir 18 konur og er bara unnin með konum,“ segir tónlistamaðurinn Bubbi Morthens sem frumflutti nýtt lag í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Bubbi segir að aðeins konur spili á þessari plötu.

„Þetta er rokk, pönk, popp og folk. Það er meira eða minna verið að syngja um konur á þessari plötu. Ég er að syngja um atburði sem ég hef lesið í blöðunum, andlát fjórtán ára stúlku, þarna er ég að syngja um flóttafólk sem hefur komið til Íslands, ég er að syngja um konurnar sem var drekkt í drekkingahyl, ég er að syngja lag til dóttur minnar og margt fleira.“

Bubbi segir að platan sé bæði hugljúf og rammpólitísk. Lagið Þarna flýgur ríka fólkið var spilað í fyrsta sinn í þættinum og heyra má það hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×