Tónlist

Nýtt lag frá Páli Óskari: Eitt fyrsta „breiköpp“ lagið hans

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Páll Óskar frumsýndi myndband við nýjasta lagið sitt Gegnum dimman dal í söfnunarþætti Samhjálpar á Stöð 2 í kvöld.

Hann greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær að lagi sé eitt fyrsta „breiköpp“ lagið hans:

„Fjallar um að komast út úr skaðlegu sambandi (við fólk, fíknir eða dóp) og standa uppréttur á eftir. Þess vegna er fullkomið að frumflytja það í söfnunarþættinum fyrir meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot annað kvöld.“

Myndbandið við lagið og viðtal við Palla úr söfnunarþættinum í kvöld má sjá í spilaranum hér að ofan (lagið byrjar á mínútu 2.45).

Allar upplýsingar um landssöfnun Samhjálpar má nálgast á heimasíðunni samhjalp.is en söfnunin er fyrir endurbyggingu meðferðarheimilisins Hlaðgerðarkot.

Nýtt lag. New Song. Deilið að vild. Fæst ókeypis / Free Download @ www.palloskar.isGEGNUM DIMMAN DAL - TEXTI / LYRICS...

Posted by Páll Óskar (a.k.a. Paul Oscar) on Saturday, 21 November 2015

Tengdar fréttir

Sjáðu Glowie taka lagið One Day

Söngkonan Glowie steig á stokk í beinni útsendingu í sérstökum þætti á Stöð 2 vegna Landssöfnunar Samhjálpar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×