Lífið

Nýtt lag frá Láru Rúnars og plata á leiðinni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Lára Rúnars
Lára Rúnars mynd/kristín péturs
Tónlistarkonan Lára Rúnars gefur út lagið Frelsi í dag af væntanlegri plötu hennar Þel sem kemur út þann 26. maí. Tvö lög af plötunni hafa þegar komið út. Lára gefur plötuna út sjálf og hefur hafið söfnun inn á Karolina Fund fyrir útgáfunni. Þeir sem styrkja útgáfu plötunnar fá plötuna strax til niðurhals.

Lára sem ólst upp við dynjandi rythma hljómsveitarinnar Grafík og Suður-Ameríska gítartónlist föður síns hefur starfað við tónlist frá því hún var unglingur. Eftir að hafa týnt sér í ljóðalestur og protools varð fyrsta plöta Láru Rúnars til sem kom út árið 2003, Standing Still.

Ári síðar hitaði Lára Rúnars upp fyrir Damien Rice sem leiddi til enn frekara samstarfs á plötu Láru sem kom út árið 2006, Þögn. Þar gætti áhrifa frá Stinu Nordenstam, Blonde Redhead og Cardigans svo eitthvað sé nefnt.

Á þriðju plötu Lára Rúnars, Surprise, kvað við nýjan tón. Platan sló í gegn á Íslandi og áhugi spratt að utan í kjölfarið. Viðtóku fjörugar tónlistarhátíðir á borð við The Great Escape, Eurosonic, Spot Festival auk sérstakra tónleika Q Magazine í London þar sem Lára hitaði uppf yrir Amy MacDonald.

Fjórða plata Láru Rúnars, Moment, kom út árið 2012 og fengu þar dekkri og ögrandi hliðar Láru að njóta sín. Við gerð plötunnar segist Lára hafa verið undir áhrifum frá sterkum tónlistarkonum eins og PJ Harvey, Björk og Bat For Lashes en þau áhrif eru augljós í melódísku en angurværu indí-poppi Láru Rúnars.

Sumarið 2013 fór Lára Rúnars ásamt Mugison, Jónasi Sig, Ómari Guðjóns, Arnari Þór Gíslasyni og Guðna Finnssyni á tónleikaferð um landið á eikarbát. Úr varð ævintýri Áhafnarinnar á Húna.

Síðastliðið ár hefur Lára Rúnars verið að vinna plötu í samstarfi við Íkornann Stefán Örn Gunnlaugsson. Ólíkt fyrri plötum Láru þá er Þel öll samin og sungin á Íslensku.




Tengdar fréttir

Lára Rúnars gefur út nýtt myndband

Lára Rúnarsdóttir gefur út nýtt lag og myndband. Lagið heitir Rósir og er af væntanlegri plötu Láru sem kemur út snemma á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×