Leikjavísir

Nýr Total War leikur kynntur til sögunnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Attila Húnakonungur.
Attila Húnakonungur. Mynd/Crative Assembly
Creative Assembly hefur kynnt næsta leik Total War seríunnar til sögunnar. Leikurinn heitir „Total War: Attila“ og byrjar árið 395 eftir krist. Attila húnakonungur verður í forgrunni leiksins, sem fjallar um fall Rómarveldis.

Aukapakkinn Barbarian Invasion, fyrir Total War: Rome, sem kom út árið 2004 sneri einmitt að falli Rómarveldisins.

Á heimsíðu leiksins segir að hann verði gefinn út í febrúar á næsta ári. Þar segir einnig að eyðileggingarkerfi leiksins hafi verið endurbætt og leikmenn geti nú kveikt í byggingum til að hræða verjendur þeirra. Þá verður mögulegt að þurrka borgir út af kortinu, en það hefur ekki verið hægt áður.

Í Total War: Attila geta leikmenn annað hvort unnið að því að sigra Róm eða verja keisaraveldið.
Hér má sjá kynningartrailer leiksins. Hér má sjá viðtal við einn af forsvarsmönnum Creative Assembly um leikinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×