Lífið

Nýja Millenium-bókin er tilbúin

Atli Ísleifsson skrifar
Noomi Rapace í hlutverki Lisbeth Salander, Stieg Larsson og David Lagercrantz.
Noomi Rapace í hlutverki Lisbeth Salander, Stieg Larsson og David Lagercrantz.
Fjórða bókin í Millenium-bókaröð sænska rithöfundarins Stieg Larsson er nú tilbúin og mun hún koma út þann 27. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í frétt Dagens Nyheter.

Larsson lést árið 2004 og var þá kominn vel á veg með fjórðu bókina, þó að fyrstu þrjár höfðu þá enn ekki verið gefnar út. Þessi fjórða bók byggir þó ekki á handriti Larssons heldur er það sænski rithöfundurinn David Lagercrantz sem skrifar bókina.

Lagercrantz er einna helst þekktur fyrir að hafa skrifað ævisögu sænska knattspyrnumannsins Zlatan Ibrahimovic.

Bókin mun koma út í 35 löndum samtímis, þar á meðal Íslandi. Samkvæmt heimildum Vísis mun Halla Kjartansdóttir þýða verkið yfir á íslensku líkt og fyrri bækurnar þrjár.

Bókin verður um 500 síður að lengd og ber heitið „Det som inte dödar oss“ eða „Það sem drepur okkur ekki“, sem er vísun í orð þýska heimsspekingsins Friedrich Nietzsche um að „það sem drepur þig ekki styrkir þig.“

Linda Altrov Berg, starfsmaður hjá Norstedts Agency, segir útgáfuna vera einstaka og telur hún fullvíst að aldrei áður hafi útgáfa sænskrar bókar verið með þessum hætti. „Síðasta dæmið um eitthvað í þessa veru var örugglega Da Vinci-lykillinn eftir Dan Brown.“

Fyrstu bækurnar þrjár, Karlar sem hata konur, Stúlkan sem lék sér að eldinum og Loftkastalinn sem hrundi komu út á árunum 2005 til 2007.

Talið er að um 75 milljónir manna hafi lesið bækurnar sem fjalla um rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist og tölvusnillinginn Lisbeth Salander.

Eva Gabrielsson, ekkja Larssons, hefur gagnrýnt það mjög að til standi að gefa út fjórðu bókina. Segir hún að bókaflokknum hafi verið lokið með þeim þremur bókum sem hann hafi fullklárað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×