Bílar

Ný Toyota Corolla frumsýnd

Finnur Thorlacius skrifar
Ári lagleg nýja Corollan, en hefur stækkað aðeins á 50 árum.
Ári lagleg nýja Corollan, en hefur stækkað aðeins á 50 árum.
Laugardaginn 1. október verður ný Corolla frumsýnd hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi. Sýningin stendur frá kl. 12 – 16 og er hluti af 50 ára afmælishátíð þessa mest selda bíls í heimi.

Fjöldi nýjunga er í þessari 11. kynslóð af Corollu sem er fyrir löngu orðin heimilisvinur á Íslandi eins og annars staðar enda hefur Corolla selst í  44 milljón eintökum í 150 löndum frá því hún var fyrst kynnt á miðjum bítlatímanum, 1966.

Á meðfylgjandi mynd má glöggt sjá hvernig Corollan hefur breyst á hálfri öld.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×