Innlent

Ný stjórn Pírata í Reykjavík

Birta Svavarsdóttir skrifar
Nýkjörin stjórn Pírata í Reykjavík.
Nýkjörin stjórn Pírata í Reykjavík. Píratar í Reykjavík
Ný stjórn Pírata í Reykjavík var kjörin á aðalfundi félagsins sunnudaginn 14. ágúst. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Pírötum í Reykjavík.

Nýr formaður Pírata í Reykjavík er Andrés Helgi Valgarðsson. Meðstjórnendur eru Elsa Nore, Kjartan Jónsson, Nói Kristinsson og Helena Stefánsdóttir.

Varamenn eru Gissur Gunnarsson, Hrannar Jónsson, Árni Steingrímur Sigurðsson, Björn Þór Jóhannesson og Helgi Már Friðgeirsson.

Einnig voru kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga en þeir eru Helgi Njálsson og Bergþór Heimir Þórðarson.

Píratar í Reykjavík eru stærsta aðildarfélag Pírata og telja 1462 félagsmenn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×