Lífið

Ný stikla úr Homeland

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Glæný stikla úr fjórðu þáttaröð af sjónvarpsseríunni Homeland er komin á netið.

Þáttaröðin lofar góðu ef marka má stikluna en það er sem fyrr leikkonan Claire Danes sem fer með aðalhlutverkið.

Auk hennar sjást Mandy Patinkin og Rupert Friend í stiklunni.

Fjórða sería af Homeland verður frumsýnd sunnudaginn 5. október á Showtime vestan hafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×