Tónlist

Ný plata frá Sesar A: Gefur fyrri hluta plötunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sesar A.
Sesar A. vísir
Eftir langa bið sendir Sesar A frá sér nýja sólóplötu. Platan heitir Vox populi og nú þegar er hægt að hala niður fyrri hlutanum frítt í gegnum heimasíðu hans. Heimasíðan, sem er upphaflega lénið síðan frá árið 2001, er endurgerð og aðlöguð bæði snjallsímum, borð- og spjaldtölvum.

Fyrri hluti Vox populi saman stendur af tveim lögum. Fyrst er það lagið „Láttu renna“ þar sem Sesar A nýtur stuðnings söngkonurnar BB. Lagið er tileinkað Hermanni Fannari og Sigurbirni, einnig þekktur sem Biogen.

Svo er það lagið „Oddviti“ þar sem Karlakórinn Bartónar leggja sínar raddir til. Mun það vera í fyrsta skipti sem íslenskt hipp hopp blandast hinni grónu karlakórshefð.

Platan kemur út í tilefni af því að liðin eru 15 ár frá stofnun hljóðversins Geimstöðin Mír. Þar tók Sesar A m.a. upp fyrstu rappplötuna eingöngu á íslensku, Stormurinn á eftir logninu, plötuna Gerðuþaðsjálfur og safnplötuna Rímnamín.

Bæði lögin eru hljóðblönduð og tónjöfnuð af Finni Hákonarsyni í hljóðverinu Finnland. Kári Martinsson Regal sá um hönnun og vefsíðugerð. Kórstjóri Bartóna er Jón Svavar Jósefsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×