Ný íslensk kvikmynd um norðurljós Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. júní 2014 22:34 MYND/ICELANDAURORAFILMS
Verið er að leggja lokahönd á nýja íslenska norðurljósamynd sem fyrirhugað er að komi út á mynddiskum og á netinu í næsta mánuði. Myndin mun bera nafnið Iceland Aurora og var fyrsta sýnishornið úr myndinni frumsýnt á netinu í gær og hefur það fengið miklar viðtökur en rúmlega fimm þúsund manns hafa nú þegar horft á stikluna. Tökur á myndinni hafa staðið yfir undanfarin þrjú ár og er meginþorri efnisins tekinn upp síðastliðinn vetur. Hópurinn sem kom að myndinni eyddi alls 87 nóttum utandyra við tökur á myndinni í vetur og er myndefnið fengið af 50 mismunandi stöðum, víðsvegar um Ísland. Höfundar myndarinnar eru þrír; þeir Arnþór Tryggvason, Pétur Kristján Guðmundsson og Snorri Þór Tryggvason sem allir eru sjálfstætt starfandi.MYND/ICELANDAURORAFILMSMyndin er samstarfsverkefni tveggja myndvera, Trailerpark Studios og Borgarmyndar og er tónlistin sem heyrist í stiklunni hér að neðan sérsamin af Pétri Jónssyni hjá Anthemico Records. Myndin verður um hálftími að lengd og er samsett úr tugum þúsunda ljósmynda, sem settar eru saman í svokallaðar „timelapse“ klippur er fram kemur í tilkynningu frá Borgarmynd. Myndin mun samanstanda af sólseturs-, nætur-, norðurljósa- og sólarupprásarsenum, þó meginuppistaðan séu sem fyrr segir norðurljós. „Það er enginn þulur eða útskýringar í myndinni, heldur leiðir myndefnið og tónlist áhorfandann í gegnum íslenskar vetrarnætur, undir bjarma norðurljósanna,“ eins og segir í tilkynningunni. Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan en hún verður gefin út í svokölluðum 4K og FullHD ofurupplausnum.
Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira