Lífið

Ný ísdrottning komin í heiminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg fjölskylda.
Falleg fjölskylda. úr einkasafni
Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir og Gylfi Þór Valdimarsson eignuðust sitt annað barn á laugardaginn þegar stúlkubarn kom í heiminn.

Stúlkan var níu merkur að þyngd og heilsast henni vel. Saman eiga þau nú tvö börn en fyrir átti Gylfi tvö börn. 

Anna Svava og Gylfi reka saman ísbúðina Valdísi úti á Granda en búðin er ein sú allra vinsælasta á landinu. Hér að neðan má sjá glænýja mynd af barninu sem Lífið hefur fengið leyfi til að birta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×