Körfubolti

Nowitzki klárar ferilinn hjá Dallas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dirk Nowitzki.
Dirk Nowitzki. vísir/getty
Það er nokkuð ljóst að Þjóðverjinn Dirk Nowitzki klárar sinn körfuboltaferil hjá Dallas Mavericks.

Þessi 38 ára gamli leikmaður er búinn að samþykkja nýtt tveggja ára samningstilboð Mavericks.

Nowitzki losaði sig undan samningi í sumar en náði að lokum samkomulagi við Mavs. Það samkomulag hljómar upp á tæpa fimm milljarða króna í vasa Nowitzki næstu tvo árin.

Nokkur lið sýndu Nowitzki áhuga í sumar og þar á meðal Golden State Warriors sem nældi síðan í Kevin Durant í staðinn.

Mavericks er að styrkja sig með þeim Harrison Barnes, Andrew Bogut og Seth Curry.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×