Fótbolti

Nóg fyrir strákana að hitta á markið í kvöld? | Hart var með Leo í gær

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Joe Hart og Leo hressir á æfingu í gær.
Joe Hart og Leo hressir á æfingu í gær. vísir/vilhelm
Joe Hart, markvörður enska landsliðsins, var með tuskuljónið Leo á Riviera-vellinum í Nice í gær þar sem enska landsliðið stóð og gerði ekki neitt í fimmtán mínútur á meðan það var myndað í bak og fyrir.

Leo hefur vakið mikla athygli á mótinu en hefðin er sú hjá enska liðinu á mótinu að sá sem er slakastur á æfingum þarf að bera ábyrgð á Leo í ákveðinn tíma og vera með hann öllum stundum.

Þó þetta sé meira og minna sprell hjá enska landsliðinu væri það fínt ef Hart væri ekki að finna sig fyrir leikinn gegn Íslandi í kvöldi en hann hefst klukkan 19.00 að íslenskum tíma.

Hart er einn besti markvörður Evrópu en eins og allir vita ver hann mark Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Jack Wilshere var með Leo til að byrja með í keppninni en blaðamaður Vísis varð vitni að því í Mixed Zone eftir leik Englands og Slóvakíu þegar hann gleymdi ljóninu inn í klefa er hann gekk upp í rútu.

Nokkrum mínútum síðar kom Wilshere aftur í gegnum allt Mixed Zone-ið og kom skömmustulegur út með ljónið á bakinu er allir blaðamennirnir á svæðinu skelltu upp úr.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Nú mega lömbin sparka

England og Ísland mætast í fyrsta mótsleik þjóðanna í sögunni á EM 2016 í Nice í kvöld. Í boði er farseðill í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í Frakklandi. Síðast mættust liðin í vináttuleik á Manchester-stadium fyrir tólf árum þegar strákarnir okkar voru notaðir sem boxpúðar sem máttu ekki slá á móti.

EM-dagbókin: Af hverju getur Ísland ekki unnið England?

Ég stóð uppi í stúku á Allianz Riviera-vellinum, eða Hreiðrinu eins og við köllum það, og fylgdist með æfingu íslenska liðsins eftir blaðamannafundinn í Nice í gær. Menn voru bara að skokka í hringi eins og alltaf á þessum opnu fimmtán mínútum.

Lið framtíðarinnar í vandræðum

Þrjátíu ár af sárindum var sungið í laginu Three Lions (Football's Coming Home) þegar það var samið fyrir EM 1996 sem haldið var á Englandi. Þar tapaði liðið í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum gegn Þýskalandi sem jók á sársaukann. Tuttugu ár eru liðin og enska liðið þekkir ekkert nema sárindi á stórmótum. Svo mikinn að í dag er textinn "No more years of hurt“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×