Njósnabíll við Njarðvíkurhöfn Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2013 12:53 Bíllinn umdeildi stendur við höfnina. Mynd/ Hilmar Bragi.
Bíll með falinni myndavél hefur undanfarna daga staðið við Njarðvíkurhöfn. Bíllinn er á vegum Fiskistofu samkvæmt upplýsingum frá lögreglu til að fylgjast með löndun í höfninni. Bílinn var fjarlægður seint í gær, fljótlega eftir að myndir af honum birtust á vef víkurfrétta en þá hafði hann staðið á nokkrum stöðum við höfnina undanfarna daga. Bílnum var lagt við hafnarsvæðið í Njarðvíkurhöfn og í afturglugga hans mátti greina falda myndavél sem beint var að hafnarsvæðinu. Lögreglan á Suðurnesjum kannaðist lítillega við málið þegar fréttastofa heyrði í henni í morgun, lögreglumenn hefðu farið í höfnina og athugað með bílinn eftir að hafa fengið ábendingu um málið og staðfesti hún að bíllin hefði verið á vegum Fiskistofu en sá ekkert athugavert við myndavélina, það sé ósköp eðlilegt að Fiskistofu sé gert að fylgjast með löndun. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er bíllinn bílaleigubíll. Pétur Jóhannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar sagði í samtali við fréttastofu í morgun að Fiskistofa hafi oft verið að fylgjast með löndun og hvort verið væri að landa framhjá vigt, en hann hafði ekki áður heyrt um að þeir hafi verið með falda myndavél í bíl. Hann frétti af málinu í gær og sagðist vita af því að bíllinn hefði verið að trufla starfsmenn í höfninni, þeim hefði þótt óþægilegt að hafa hann þarna. Ekki náðist í Eyþór Björnsson fiskistofustjóra í morgun.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira