Leikjavísir

Nintendo Switch kynnt til leiks

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Nintendo
Nintendo hefur kynnt nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins sem hingað til hefur gengið undir nafninu Nintendo NX. Tölvan heitir Nintendo Switch og er nokkurs konar samblanda af leikjatölvu og spjaldtölvu. Sala tölvunnar hefst í mars á næsta ári.

Tölvan er í raun í þremur hlutum. Það eru tveir stýripinnar, sem kallast Joy-Con, en þá er hægt að festa á hliðar skjásins. Þá fylgir einnig stöð sem hægt er að setja skjáinn í. Stöðin er tengd við fjarstýringu og sjónvarp.

Nintendo birti í dag stiklu fyrir tölvuna sem sýnir hvernig hún virkar.

Í stiklunni má sjá fólk spila Zelda: Breath of the Wild, Skyrim: Definitive Edition, NBA 2K17 og uppfærða útgáfu af Mario Kart 8 svo eitthvað sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×