Innlent

Neytendasamtökin mótmæla matvælaskatti harðlega

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Neytendasamtökin segjast gefa lítið fyrir þau rök stjórnvalda að verið sé að einfalda skattakerfið með hækkun virðisaukaskatts á matvæli úr 7% í 12%. Ekki sé hægt að fallast á þau rök enda verði áfram tvö skattþrep þó svo annað hækki um 5% en hitt lækki um 1,5 prósentustig, þ.e. efra þrepið úr 25,5% í 24%.

Í tilkynningu frá samtökunum er vísað til þess að tekjulægstu heimilin verji 17,6% ráðstöfunartekna sinna í matar- og drykkjarvörur, á móti 10,7% hjá tekjuhæstu heimilunum. Neytendasamtökin mótmæla þessum áformum harðlega enda ljóst að þetta kemur verst niður á tekjulægri heimili.

„Minnt er á að það voru einmitt sömu flokkar í ríkisstjórn þegar ákveðið var að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 14% í 7%. Neytendasamtökin studdu eindregið þá aðgerð og hljóta því að spyrja hvað hafi breyst síðan þá.“

Neytendasamtökin benda þó á að þau styðji hugmyndir um að leggja vörugjald niður enda sé það til þess fallið að einfalda skattakerfið. Vörugjaldskerfið sé mjög flókið.

„Auk þess er það oftar en ekki lagt á vörur sem eru nauðsynlegar heimilunum. Einnig er minnt á að þessar sömu vörur eru í hærra virðisaukaskattsþrepinu og því eru opinberar álögur á þessar vörur mjög miklar. Niðurfelling vörugjalda og lækkun hærra virðisaukaskattsþrepsins vegur þó að mati Neytendasamtakanna ekki upp á móti mikilli hækkun virðisaukaskatts á matvæli.“

Neytendasamtökin gera ráð fyrir að hækkun á matarskatti komi fram í verðlagi um leið og hún taki gildi og hafi þar með umtalsverð áhrif á verðtryggingu húsnæðislána. Samtökin hafa áhyggjur af því að lækkanir í efra þrepi virðisaukaskatts og niðurfelling vörugjalda muni ekki skila sér til neytenda í sama mæli. Dæmin sýni að slíkar lækkanir skili sér í mörgum tilvikum illa til neytenda, nema því aðeins að stjórnvöld komi á fót sérstöku eftirliti sem fylgi því eftir.

 

„Gera Neytendasamtökin því þá kröfu, verði þessar tillögur að veruleika, að því verði sérstaklega fylgt eftir, að umræddar lækkanir skili sér til neytenda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×