Fótbolti

Neymar og Messi sáu um Athletic Club

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Neymar kom Barcelona til bjargar
Neymar kom Barcelona til bjargar Vísir/Getty
Barcelona lagði Athletic Club frá Bilbao 2-0 á heimvelli sínum í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Neymar skoraði bæði mörkin eftir sendingar frá Lionel Messi.

Barcelona átti í vandræðum með að finna leiðin í mark Athletic lengi framan af og var markalaust í hálfleik.

Það var ekki fyrr en ellefu mínútur voru til leiksloka að Neymar fann leiðina í markið og fimm mínútum síðar skoraði hann aftur eftir frábæran undirbúning Messi.

Barcelona er því enn með fullt hús stiga í deildinni, nú eftir þrjá leiki en Athletic er með 3 stig úr jafn mörgum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×