Tónlist

Neil Young og Pegi skilja

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Tónlistarmaðurinn Neil Young hefur sótt um skilnað frá Pegi Young, eiginkonu hans til 36 ára. Neil og Pegi hafa oft unnið saman í tónlistinni í gegnum tíðina en ástæðan fyrir skilnaðinum liggur ekki fyrir. Þau eiga tvö börn saman, bæði á fullorðinsaldri.

Pegi var innblásturinn að fjölmörgum ástarlögum Young eins og „Such a Woman“, „Unknown Legend“ og „Once an Angel“, samkvæmt tónlistarblaðinu Rolling Stone.

Pegi hefur gefið út þrjár sólóplötur síðan árið 2007 og haldið eigin tónleikaferðalög, stundum með Neil á gítar. Þá hefur hún einnig komið fram á tónleikum Young ófáum sinnum. Hún byrjaði að syngja bakraddir á tónleikum hans á tíunda áratugnum og hefur oft spilað með honum á tónleikaferðalögum seinustu tuttugu árin.

Pegi og Neil áttu þátt í að stofna Bridge-skólann í Kaliforníu sem hjálpar börnum með talörðugleika og aðrar fatlanir en sonur hjónanna, Ben Young, þjáist af heilalömun.

Pegi og Neil áttu að koma fram saman á Farm Aid tónleikum í North Carolina í september en hún hefur nú hætt við.

Eins og kunnugt er tryllti Neil Young lýðinn í Laugardalshöll í sumar ásamt hljómsveit sinni Crazy Horse á ATP tónleikahátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×