Innlent

Náttúrupassinn mun taka breytingum

sveinn arnarsson skrifar
Sátt verður að nást Þingmenn segja mikilvægt að ná breiðri sátt um náttúrupassann.
Sátt verður að nást Þingmenn segja mikilvægt að ná breiðri sátt um náttúrupassann. Fréttablaðið/Vilhelm
Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir mikilvægt að ná breiðri sátt um náttúrupassann. Verndun náttúru og uppbygging innviða þurfi að fara að eiga sér stað sem fyrst.

Frumvarp Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um náttúrupassa er nú í meðförum nefndarinnar og er vinna hafin við breytingar.

Ferðaþjónustan skilar nú yfir þrjú hundruð milljörðum króna í gjaldeyristekjur og spár gera ráð fyrir að gjaldeyristekjur þessa árs slagi í 350 milljarða.

Jón telur samt sem áður grundvöll fyrir að ná í tekjur til uppbyggingar innviða.

„Í sjávarútveginum eru tekin veiðigjöld þrátt fyrir að sjávarútvegurinn skili heilmiklum gjaldeyristekjum. Sama má segja um ferðaþjónustuna. Nú er hins vegar unnið að því að finna lausn á því hvernig skipulagið verður. Við erum rétt að byrja að skoða málið inni í atvinnuveganefnd en það er alveg ljóst að einhverjar breytingar þarf að gera á frumvarpinu til að skapa sátt um það,“ segir Jón.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF, segir náttúruna enga bið þola.

„Það er alveg ljóst að skatttekjur hafa aukist gríðarlega af ferðaþjónustunni síðustu misseri. Þá mun greinin öll falla undir virðisaukaskattskerfið frá og með næstu áramótum með tilheyrandi tekjuauka fyrir ríkissjóð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×