Lífið

Nakin á forsíðu Women's Health UK

Zoe Saldana
Zoe Saldana
Zoe Saldana er nakin á forsíðu september-tölublaðs Women's Health UK. 

Orðrómur þess efnis að Saldana eigi von á barni hefur verið á kreiki undanfarið, en hún hefur ekki staðfest neitt í þeim efnum. Í viðtalinu segir hún þó.

„Líkaminn minn er ekki jafn stinnur og hann var. Ég lít í spegil og sé hluti sem ég vil ekki. Fyrstu viðbrögð mín eru að anda djúpt og hugsa, „Ég er kona, ég er 36 ára gömul, líkaminn minn er að breytast,“ segir Saldana.

En Guardians of the Galaxy stjarnan er að læra að vera örugg með líkama sinn, þó hann sé að breytast.

„Ég er nákvæmlega þar sem ég vil vera. Mér finnst ég falleg á annan hátt en áður. Meira svo en þegar ég var alltaf í ræktinni. Það hafa komið tímar þar sem ég var mjög grönn og ég kunni ekki við það því mér fannst ég of mössuð og með of lítil brjóst. Maður verður aldrei alveg glaður með líkama sinn, þannig að til fjandans með þetta allt saman. Vertu bara hamingjusöm, hvernig sem líkaminn þinn er.“

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa allir sagt frá því að heimildamenn þeirra segi Saldana ólétta. Ef orðrómurinn er sannur er þetta fyrsta barn þeirra Zoe Saldana og Marco Perego, sem hún gekk að eiga í júní síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×