Lífið

Myndin sem klýfur inter­netið: Hvort er þetta Bill Murray eða Tom Hanks?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hanks er hér til vinstri og Murray til hægri.
Hanks er hér til vinstri og Murray til hægri.
Ljósmynd af þekktum leikara hefur vakið gríðarlega mikla athygli á veraldarvefnum. Fólk er hreinlega ekki sammála um það hvort um sé að ræða leikarann Tom Hanks eða Bill Murray.

Myndin var tekin á St. Andrews golfvellinum í Skotlandi í október 2012 en síðan þá hefur fólk rifist um hvor leikarinn sé á myndinni. 

Það muna eflaust margir eftir myndinni af kjólnum, hvort hann hafi verið gulllitaður eða blár. Margir vilja líkja þessari mynd við kjólinn, því fólk virðist alls ekki sjá myndina sömu augum.

Hér að neðan má sjá umrædda mynd.

 

Við spyrjum því lesendur okkar, hvaða maður er þetta sem sjá má á myndinni?

Lesendur eru hvattir til að svara spurningunni hér fyrir neðan eða skjóta á svarið í ummælakerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×