Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Vísir Aðsendar greinar 09. febrúar 2012 03:13
Hjörleifur Árnason.
Hjörleifur Árnason.
Hjörleifur Árnason skrifar:
Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Eftir 2008 hefur hvert áfallið á fætur öðru dunið á hinum almenna borgara með hækkandi sköttum og verðlausari krónu og hafa menn reynt hvað þeir geta til þess að bæta upp tapið með allskyns aukavinnu.

Eitt slíkt tilvik átti sér stað í mars 2011. Þá var stofnað fyrirtækið ROKK slf sem ætlaði sér stóra hluti á innflutningi á Rauðvíninu Motörhead Shiraz og verður saga þess rakin hér stuttlega.

Stofnendur gerðu sér grein fyrir gríðarlega háum og ósanngjörnum tollum og gjöldum á áfengi en töldu sig vera með nokkuð sérstaka vöru sem hefur ekki verið í boði á íslenskum markaði hingað til. Þeir voru komnir í samband við nokkra aðila sem sérhæfa sig í framleiðslu vína sem eru framleidd í samstarfi við tónlistarmenn og / eða umboðsmenn þeirra og eru kennd við þá.

Byrjað var á því að flytja inn einn kassa til að kanna markaðinn og farið með tvær flöskur til ÁTVR sem prufur til að leggja fyrir óskilgreinda nefnd sem leggja átti mat á það hvort vínið kæmist í reynslusölu eða ekki. Þetta var í byrjun mars 2011.

28. mars tekur síðan nefnd ÁTVR ákvörðun um að hafna umsókninni um vínið og vísar þar til siðareglna ÁTVR. ROKK slf leggur þá fram mótgögn í málinu og reynir að snúa við ákvörðun ÁTVR.

29. apríl er svarað með staðfestingu á fyrri höfnun. Þá er málið kært samdægurs til Fjármálaráðuneytis eins og eðlilegt ferli er. Engar upplýsingar eru gefnar um hvar eigi að kæra og kæran því send á skrifsfofustjóra ráðuneytisins sem áframsendir beiðnina samdægurs til lögfræðings ráðuneytisins.

5. maí svarar svo Guðmundur Jóhann Árnason lögfræðingur og er settur á fundur með honum þar sem farið er yfir stöðu mála og í beinu framhaldi lögð fram formleg kæra.

1. júlí kemur loksins svar, eftir margítrekaðar tölvupóstsendingar, um að búið sé að úrskurða í málinu. Niðurstaðan var sú að kærunefnd Fjármálaráðuneytis hefði komist að þeirri niðurstöðu að snúa við ákvörðun ÁTVR um að hafna umsókn um Motörhead Shiraz.
Aðgangur að birgja vef ÁTVR er síðan veittur 13. júlí og samdægurs sótt um reynslusölu á Motörhead Shiraz í gegnum vefinn.

Fyrir fyrirtæki sem er nýstofnað og á vægast sagt mjög erfitt með að fá skýr svör um næstu skref var álitið sem svo að málið væri í höfn og því farið í það að panta eitt bretti af rauðvíni. Annað kom hinsvegar í ljós. ÁTVR hafði eingöngu verið að hafna "umsókn" um reynslusölu, en ekki reynslusölunni sjálfri. Einnig er rétt að taka fram á þessum tímapunkti að ROKK slf hefur enginn svör fengið um það hvaða fólk situr í ákvörðunarnefnd ÁTVR né hverjir sitja í kærunefnd Fjármálaráðuneytisins.

Eftir margítrekaðar tilraunir til svars um ákvörðun um sölu, kemur, þann 3. Ágúst, loksins svar frá framkvæmdastjóra sölu og þjónustusviðs ÁTVR, þar sem hann segir að svars megi vænta á næstu dögum.

17. ágúst er svo þolinmæðin á þrotum og póstur sendur á Guðmund Árnason ráðuneytisstjóra Fjármálaráðuneytisins og Ívar J. Arndal forstjóra ÁTVR til að fá úr því skorið hvort yfir höfuð væri verið að vinna í málum ROKK slf, hvorugur þeirra hafði fyrir því að svara.

22. ágúst kemur svo niðurstaða ÁTVR um að stofnunin hafni reynslusölu á Motörhead Shiraz.

2. september er því leitað til lögmannsstofu sem sendir formlegt bréf til ÁTVR þar sem bent er á að engin ný gögn hafi komið fram í málinu síðan ráðuneytið úrskurðaði að ÁTVR bæri að taka við umsókn um reynslusölu og þess krafist að taka vínið í reynslusölu. Við því var ekki orðið.

19. september er seinni kæran því send inn til Fjármálaráðuneytisins og enn og aftur eftir margítrekaðar tilraunir til þess að ná sambandi við lögfræðing ráðuneytisins kemur loks lokaniðurstaða inn um lúguna í byrjun árs 2012. Á einhvern óskiljanlegan hátt tekst kærunefnd ráðuneytisins að vera sammála ÁTVR og hafna reynslusölu á víninu í verslunum ÁTVR. Þetta er þveröfug niðurstaða við fyrra svari ráðuneytisins með nákvæmlega sömu gögn í höndunum.

Fyrirspurn ROKK slf um reynslusölu á Motörhead Shiraz í ÁTVR hefur því tekið um það bil 10 mánuði og eru helstu ástæður höfnunar eftirfarandi:

„Nafn hljómsveitarinnar er vísun í notendur hins ólöglega fíkniefnis amfetamíns ásamt því að textar við lög hljómsveitarinnar fjalli iðulega um stríð, misnotkun valds, óábyrgt kynlíf og misnotkun vímuefna ".


Þessar upplýsingar fékk ÁTVR af hinum opna upplýsingavef Wikipedia en á honum getur hver sem er sett inn þær upplýsingar sem honum sýnist og er hann því varla marktækur í kærumálum sem þessum.

Einnig segir í úrskurði að umrætt rauðvín sé ekki framleitt af Motörhead heldur af Broken Back Winery í Ástralíu og þar af leiðandi má ekki standa Motörhead framann á flöskunni. Semsagt meðlimir hljómsveitarinnar eru ekki sveittir að tína ber og tappa á flöskur og þess vegna má nafn hljómsveitarinnar ekki prýða miðann á flöskunni.

Rétt er að það komi einnig fram að lönd sem við miðum okkur oft við í regluverki eru að selja Motörhead Shiraz. Í Svíþjóð seldist fyrsta upplag upp á nokkrum dögum, í Finnlandi seldist það einnig upp á nokkrum dögum. Í Noregi, Bretlandi og Þýskalandi hefur salan einnig farið vel af stað. Einnig er komið á markaðinn Motörhead Vodka og selst hann einnig mjög vel erlendis.

Af þessu má einfaldlega sjá að allt vín sem ber merki tónlistarmanns eða hljómsveitar, sem kemur ekki beint sjálfur að gerð vínsins, hvernig sem það er svo metið, verður aldrei selt í ÁTVR með núgildandi reglum. ROKK slf er komið í samband við birgja sem eru með vín merktum Rolling Stones, Police, AC/DC, Pink Floyd og í lauslegum viðræðum við birgja sem er með nokkrar Elvis Presley flöskur til sölu. Ekkert af þessu víni verður nokkurn tímann til sölu í ÁTVR.

Síðan vaknar óneitanlega spurningin hvort stóru fyrirtækin lúta öðrum reglum en litlu fyrirtækin ? Heilagur Papi er gott dæmi en þar setti umboðsmaður Alþingis ofaní við ÁTVR og Fjármálaráðuneytið eftir að Papinn fékk ekki náð hjá þessum stofnunum. Ómögulegt er að vita um allar þær tegundir sem særðu blygðunarkennd "nefndarmanna" og var hafnað.

Þá er brugghúsið Borg sem er í eigu Ölgerðarinnar að setja á markað nýjan bjór sem ber nafnið Surtur. Rétt er að það komi skýrt fram að ROKK slf hefur ekkert á móti Ölgerðinni en ef nota ætti sömu rök á stór og lítil fyrirtæki sem eru að setja nýjar vörur á markað þá kæmist þessi vara líklega ekki í sölu í ÁTVR. Surtur er ekkert minna en heimsendaspá með tilheyrandi morðum og blóðsúthellingum og ekki þykir líklegt að Surtur sjálfur komi mikið að framleiðslu bjórsins. Þessi bjór fór í sölu í ÁTVR á bóndadaginn og selst vonandi vel.

Fleiri tegundir sem ÁTVR selur sem hljóta að falla undir sömu rök og varð til þess að Motörhead Shiraz var synjað eru meðal annars Captain Morgan (kemur hann að gerð rommsins?), Dooley´s Toffee (skírskotun í nammi), Hobgoblin bjór, Fjallagrasaseyði (inniheldur gildishlaðnar upplýsingar) og Hoegarden Verbuten Vrucht þar sem miðinn inniheldur nekt, sem er náttúrulega tabú á Íslandi og má helst hvergi sjást. ROKK slf biður innflytjendur þessara vína fyrirfram afsökunar á þessari upptalningu og vonar að hún geri ekkert annað en auka söluna hjá þeim. Hún er eingöngu til að sýna fram á mismunun ÁTVR á birgjum sínum.

Væri ekki bara einfaldast að láta markaðinn ráða því hvað er selt í ÁTVR og hvað ekki ? Ef fólki líkar ekki innihaldið eða umbúðirnar sem það er í þá er það einfaldlega ekki keypt og fellur því um sjálft sig. Hversu langt á forræðishyggjan að ganga í okkar annars frábæra landi ? Einhver hefði haldið að það væri alveg nóg að skattleggja áfengi til tunglsins og til baka svo ekki bætist við ótrúlegar siðareglur sem gilda einungis fyrir suma en ekki alla til að fara eftir.

Þess má að lokum geta að umboðsmaður Alþingis er kominn með þetta mál inná borð hjá sér.

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi og lái þeim hver sem vill.

Fyrir hönd ROKK slf.
Hjörleifur Árnason

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu