Glamour

Moschino klæddu fyrirsætur sínar í rusl

Ritstjórn skrifar
Myndir/Getty
Jeremy Scott, yfirhönnuður Moschino, þurfti ekki að leita langt yfir skammt af innblæstri fyrir haustlínu Moschino í þetta skiptið. Á tískuvikunni í Mílanó í gær sendi hann fyrirsætur sínar klæddar í rusl niður tískupallinn. 

Jeremy hefur farið óhefðbundnar leiðir frá því að hann tók við Moschino fyrir nokkrum árum en þetta er fyrsta skiptið þar sem hann sendir bókstaflega rusl niður tískupallinn. Á meðal þess sem mátti sjá í haustlínunni voru ruslapokar, pappírspokar, tissjúbox, ruslalok og margt fleira áhugavert.

Gigi Hadid.





×