Íslenski boltinn

Morten Beck framlengir hjá KR

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Morten Beck í leik gegn Val í sumar.
Morten Beck í leik gegn Val í sumar. Vísir/Hanna
Danski bakvörðurinn Morten Beck skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning hjá KR en þetta kemur fram á heimasíðu KR, KRReykjavik.is í dag.

Valsmenn blönduðu sér í baráttuna um Morten Beck eftir að eins árs samningur hans rann út á dögunum en hann fór einnig á reynslu til Sarpsborg í Noregi.

Morten Beck sem lék í stöðu hægri bakvarðar í sumar var valinn besti leikmaður liðsins í sumar af liðsfélögum sínum en KR er þegar búið að semja við bakvörðinn Arnór Svein Aðalsteinsson.

Morten lék alla 22 leiki tímabilsins í fyrra eftir að hafa hrifið þáverandi þjálfara liðsins, Bjarna Guðjónsson, í æfingaferð í Bandaríkjunum síðasta vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×