Lífið

Morgunmanía skilaði sér loksins í vinnunni

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Valdís Þorkelsdóttir er búsett í London.
Valdís Þorkelsdóttir er búsett í London. MYND/Úr einkasafni
„Ég er haldin alvarlegri morgunmaníu á háu stigi, þar sem ég er mest aktív og með ferskastan huga uppúr sjö á morgnana. Þannig að ég er alltaf tilbúin í slaginn við sólarupprás. Það hefur hingað til ekki unnið með mér í tónlistinni. Þar er betra að vera í stuði á kvöldin og sofa fram eftir,“ segir Valdís Þorkelsdóttir tónlistarmaður sem stofnaði nýverið fyrirtækið Morning Mania Management í Bretlandi.

„Fyrirtækið er minn eigin frílansvettvangur þar sem ég gegni hlutverki Creative Manager sem er eins konar umboðsmaður skapandi lista,“ heldur Valdís áfram. Hún segir verkefni sín margþætt.

„Ég er til dæmis að vinna með Heru Hilmarsdóttur leikkonu í að víkka verkefnahring hennar hér í London. Auk þess er ég umboðsmaður Ara Braga Kárasonar trompetvirtúóss og sérlegur sendiherra Hjaltalín í Bretlandi. Einnig er ég yfir tónlistardeild listafyrirtækisins ART NAKED sem hefur starfsemi sína hér í London. Þar felast verkefni mín meðal annars í því að velja inn smart tónlistarmenn fyrir mánaðarlega viðburði í funheitum einkaklúbbi í Covent Garden,“ segir Valdís, létt í bragði.

„Í náinni framtíð ætla ég síðan að vinna að því að koma fleirum sniðugum listamönnum á framfæri, bæði hér í London og á Íslandi. Ég er rosalega spennt fyrir þessu öllu saman,“ heldur hún áfram.

Hugmyndina að fyrirtækinu fékk Valdís daginn eftir að hún skilaði mastersritgerð sinni í menningarstjórnun. „Hera spurði mig þá hvort ég vildi gera eitthvað sniðugt með henni þar til ég fyndi alvöru vinnu hér í London. Undanfarnar vikur hefur þetta undið upp á sig og er orðið að fullri vinnu,“ segir Valdís og bætir við. „Ég þarf mögulega bráðum að fara að leita eftir starfsnemum á næstunni.“

Starfið segir Valdís gríðarlega fjölbreytt. „Þetta er náttúrulega starf sem ég bjó mér bara til. Það má segja að þetta sé eins konar samsuða af fyrri reynslu sem tónlistarkona, skrifta á RÚV, af veru minni á IMG-umboðsskrifstofunni í London auk akademískra fræða úr mastersnáminu,“ segir Valdís að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×