Lífið

Modern Family leikari staðfestir að hann sé samkynhneigður: „Var aldrei inni í skápnum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ewing sést hér í öftustu röðinni, næst lengst til hægri.
Ewing sést hér í öftustu röðinni, næst lengst til hægri.

Leikarinn Reid Ewing hefur staðfest að hann sé samkynhneigður en þetta kom fram í Twitter-færslu frá honum. Ewing er frægastur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Modern Family.

Þessi 27 ára leikari segist í raun aldrei hafa verið inni í skápnum en aðdáendur hans komust að þessu þegar hann átti í samtali við einn þeirra á Twitter.

Ewing leikur Dylan í þáttunum sem var kærasti Haley. Hann hefur undanfarið tjáð sig ítarlega um lágt sjálfsálit sitt og lélega líkamsmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×