Lífið

Mistökin geta kennt manni eitt og annað

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
hefur meðal annars lagt stund á Shaolin Kung Fu.
hefur meðal annars lagt stund á Shaolin Kung Fu. fréttablaðið/ernir
Gísli Gunnarsson Bachmann hefur undanfarin ár ferðast víða, um Asíu, Norður-Evrópu og Bandaríkin. Á ferðum sínum hefur hann meðal annars lagt stund á jóga, bardagalistir og taó-heimspeki.

„Upphaflegi draumurinn var að fara til Taílands að læra bardagalistir. Ég vildi ekki fylgja því sem aðrir voru að segja mér að gera, ekki það að ég væri „rebel“, þetta snerist frekar um að hlusta á sjálfan mig.“ En úr varð að hann fór til Taílands og lærði Muay Thai.

Eftir sex mánaða dvöl í Taílandi lá leið Gísla til Indlands þar sem hann fór í jógakennaranám sem hafði mikil áhrif á hann. „Námið breytti töluvert lífi mínu og ég kynnstist öðrum hugmyndum en þekkjast í okkar vestræna samfélagi, að maður eigi að fylgja ákveðinni uppskrift og elta þær hugmyndir sem aðrir eru búnir að skapa fyrir mann.“

Jógakennaranámið opnaði nýjan hugarheim. „Jógaheimspekin opnaði fyrir mér þann heim að það gerist ekkert mjög slæmt ef manni mistekst. Mistökin kenna manni eitt og annað.“

Eftir dvölina á Indlandi sneri Gísli aftur heim til Íslands þar sem hann vann meðal annars fyrir sér sem jógakennari og safnaði fyrir næstu ferð. Þá lá leiðin til Austurríkis þar sem hann lærði skíða- og snjóbrettakennarann.

Nú er hann nýkominn frá Kína þar sem hann lærði taó-heimspeki, bardagalistir og kínverskt punktakerfisnudd. Hinn 7. desember næstkomandi flytur Gísli fyrirlesturinn Hófsemi og aukin lífsgleði. Í fyrirlestrinum útskýrir hann þá hugmyndafræði sem hann hefur viðað að sér á ferðalögum sínum.

„Ég ætla meðal annars að tala um frelsið sem fylgir því að taka niður grímuna sem við göngum með dags daglega,“ segir Gísli og bætir við: „Gríman sem maður setur upp er oft vörnin okkar, en hún verður oftast nær að tilbúnum karakter sem með tímanum verður erfiðara og erfiðara að stíga út úr.“

Gísli stefnir á að halda áfram að læra og ferðast. „Ég er að fara til Austurríkis aftur að kenna eftir jól. Ég kynntist frábærum strákum í Kína og við ætlum að hittast í Indónesíu næsta sumar, æfa saman og læra hver af öðrum.“

Fyrirlesturinn verður fluttur í Háskólabíói 7. desember klukkan fjögur og fer miðasala fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×