Lífið

Minnelli nýtti sér þjónustu Uber til að ná tónleikum

Atli Ísleifsson skrifar
Liza Minnelli sló í gegn í myndinni Cabaret frá árinu 1972.
Liza Minnelli sló í gegn í myndinni Cabaret frá árinu 1972. Vísir/AFP
Bandaríska leikkonan Liza Minnelli ferðaðist rúma 320 kílómetra í leigubíl á vegum Uber til að komast á tónleika sína í tæka tíð eftir að flugi hennar var aflýst.

Leikkonan átti að koma fram í Wilmington í Norður-Karólínu síðastliðinn laugardag en vél hennar var snúið aftur til Charlotte vegna slæms veðurs.

Þá voru góð ráð dýr og pantaði Minnelli sér leigubíl á vegum Uber og greiddi fyrir það 200 Bandaríkjadali, um 38 þúsund krónur, fyrir ferðina.

Í frétt BBC er haft eftir talsmanni Minnelli að bílstjórinn hafi reynst vera egypski handboltamaðurinn Ahmed El-Awady sem spilaði á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 og aftur í Atlanta fjórum árum síðar.

Minnelli kom til svo til Wilmington snemma dags á laugardaginn og spilaði fyrir um 1.500 áhorfendum með sinfóníuhljómsveit Norður-Karólínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×