Tónlist

Milkhouse frumsýnir nýtt myndband á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega skemmtilegt myndband.
Virkilega skemmtilegt myndband. vísir
Hljómsveitin Milkhouse frumsýndi myndband við lagið Gleymérei á Kex Hostel í gærkvöldi.

Myndbandið er hið glæsilegasta og komu margir að vinnslu þess. Handritavinnsla og leikstjórn var í höndum Birnis Jóns Sigurðssonar og Vilhelms Þórs Neto, en þeir nutu stuðnings Ágústs Ásgeirssonar og Stefáns Vigfússonar við upptökur og eftirvinnslu.

Fyrirtækið Motive sá um að teikna inn á ramma og það er Dominique Gyða Sigrúnardóttir sem fer með aðalhlutverk í því. Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×