Innlent

Mikið skorinn í andliti eftir líkamsárás

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fimm manns gistu fangageymslur í nótt.
Fimm manns gistu fangageymslur í nótt. Vísir/Hari
Maður skarst mikið í andliti eftir að hafa fengið glerglas í andlitið í Skeifunni í nótt. Maðurinn var fluttur til aðhlynningar á slysadeild en árásarmennirnir voru farnir af vettvangi þegar að lögreglan kom.

Þá var tilkynnt maður handtekinn í Lækjargötu grunaður um líkamsárás. Ekki var hægt að ræða við manninn sökum ástands hans og gistir hann fangageymslur.

Þá voru fjórir í viðbót handteknir vegna annarra mála, þar á meðal vopnaður maður sem ekið var á á Miklubraut, og tveir voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×