Fótbolti

Kane með þrennu fyrir Tottenham en endaði síðan í markinu - úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane.
Harry Kane. Vísir/Getty
Harry Kane og Erik Lamela voru báðir á skotskónum hjá Tottenham í kvöld þegar liðið vann 5-1 heimasigur á Asteras Tripoli í Evrópudeildinni. Harry Kane skoraði þrennu og Lamela var með tvö mörk.

Tottenham-liðið endaði leikinn manni færri eftir að Hugo Lloris fékk rauða spjaldið á 87. mínútu. Harry Kane fór í markið og var fljótur að fá á sig afar klaufalegt mark þegar Jerónimo Barrales skoraði úr aukaspyrnunni sem dæmt var á Lloris.

Þetta var örugglega einn sögulegasti leikur hjá einum leikmanni í Evrópudeildinni því Harry Kane er eflaust sá fyrsti sem skorar þrennu í leik og spilar síðan síðustu mínúturnar í markinu.

Harry Kane skoraði fyrsta markið sitt með laglegu langskoti, síðan fylgdi hann eftir af stuttu færi og skoraði síðan þriðja markið með skalla eftir sendingu frá Federico Fazio.  

Erik Lamela skoraði annað og þriðja mark Tottenham í leiknum og voru þau bæði af glæsilegri gerðinni.

Tottenham og Beşiktaş unnu bæði stórsigra í þessum C-riðli og eru bæði taplaus með fimm stig í efstu tveimur sætunum.

Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit kvöldsins í Evrópudeildinni:



Úrslit úr leikjum Evrópudeildarinnar í kvöld:

Leikir klukkan 19.05

A-riðill

Borussia Mönchengladbach - Apollon Limassol    5-0

1-0 Ibrahima Traoré (11.), 2-0 Branimir Hrgota (56.), 3-0 Ibrahima Traoré (67.), 4-0 Patrick Herrmann (83.), 5-0 Thorgan Hazard (90.+1).

Villarreal - Zürich    4-1

1-0 Cani (6.), 1-1 Marco Schönbächler (43.), 2-1 Luciano Vietto (57.), 3-1 Bruno (60.), 4-1 Giovani dos Santos (78.)

B-riðill    

Club Brugge - FC Kaupmannahöfn    1-1

0-1 Daniel Amartey (89.), 1-1 Víctor Vázquez (90.+2)

Torino - HJK    2-0

1-0 Cristian Molinaro (35.), 2-0 Amauri (58.)

C-riðill

Tottenham - Asteras Tripoli    5-1

1-0 Harry Kane (13.), 2-0 Erik Lamela (30.), 3-0 Érik Lamela (66.), 4-0 Harry Kane (75.), 5-0 Harry Kane (81.), 5-1 Jerónimo Barrales (89.)

Partizan Beograd - Beşiktas    0-4

0-1 Veli Kavlak (18.), 0-2 Demba Ba (45.), 0-3 Oguzhan Özyakup (52.), 0-4 Gökhan Töre (54.)

D-riðill

Celtic - Astra Giurgiu    2-1

1-0 Stefan Scepovic (73.), 2-0 Stefan Johansen (78.), 2-1 Gabriel Enache (81.)

Red Bull Salzburg - Dinamo Zagreb    4-2

1-0 Alan (14.), 2-0 Alan (45.), 3-0 André Ramalho (49.), 4-0 Alan (52.), 4-1 Arijan Ademi (81.), 4-2 Ángelo Henríquez (89.)

E-riðill

Estoril - Dinamo Moskva    1-2

0-1 Aleksandr Kokorin (52.), 0-2 Yuri Zhirkov (80.), 1-2

Yohan Tavares (90.+5).

 

PSV Eindhoven - Panathinaikos    1-1

1-0 Memphis Depay (43.), 1-1 Abdul Ajagun (87.)

F-riðill

Dnipro Dnipropetrovsk - Qarabag Agdam    0-1

0-1 Muarem Muarem (21.)

Internazionale - Saint-Étienne    0-0



Leikirnir klukkan 17.00

G-riðill

Rijeka - Feyenoord    3-1

1-0 Andrej Kramaric (63.), 1-1 Jens Toornstra (66.), 2-1 Andrej Kramaric (71.), 3-1 Andrej Kramaric, víti (76.)

Standard Liège - Sevilla    0-0

H-riðill

Lille - Everton    0-0

Krasnodar - Wolfsburg    2-4

0-1 Sjálfsmark (37.), 0-2 Kevin De Bruyne (46.), 1-2 Andreas Granqvist (51.), 1-3 Luiz Gustavo (64.), 1-4 Kevin De Bruyne (80.), 2-4 Wánderson (86.).

I-riðill

Slovan Bratislava - Sparta Prag    0-3

0-1 David Lafata (56.), 0-2 Tiémoko Konaté (61.), 0-3 Ladislav Krejcí (81.)

(Gert var hlé á leiknum á 40. mínútu vegna slagsmála í stúkunni)

Young Boys - Napoli    2-0

1-0 Guillaume Hoarau (52.), 2-0 Leonardo Bertone (90.+2)

J-riðill

AaB Álaborg - Dynamo Kiev    3-o

1-0 Thomas Enevoldsen (11.), 2-0 Nicolaj Thomsen (39.), 3-0 Nicolaj Thomsen (90.+1)

Steaua Búkarest - Rio Ave    2-1

1-0 Raul Rusescu (17.), 2-0 Raul Rusescu (45.) 2-1 Yonathan Del Valle (48.)

K-riðill

Dinamo Minsk - Guingamp    0-0

PAOK - Fiorentina    0-1

0-1 Juan Vargas (38.)

L-riðill

Trabzonspor - Lokeren    2-0

1-0 Mustapha Yatabaré (54.), 2-0 Kévin Constant (86.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×