Íslenski boltinn

Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis.

Sjötta umferðin klárast með þremur leikjum í kvöld. Fyrstu tveir leikirnir hefjast klukkan 19:15 en leikur Stjörnunnar og Breiðabliks hefst klukkan 20:00.

Leikur Stjörnunnar og Breiðabliks verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og strax að honum loknum verður sjötta umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum.

Hér neðst í fréttinni má sjá sjálfvirka uppfærslu á helstu atvikum í leikjunum - mörk og spjöld.

Svo nægir að smella á viðkomandi leik til að fá frekari upplýsingar og beina textalýsingu frá blaðamanni Vísis á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×