Innlent

Meta árangur af þriggja ára kerfinu með prófum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kepp ötul fram, vor unga stétt.
Kepp ötul fram, vor unga stétt. VÍSIR/VILHELM
Verzlunarskóli Íslands ætlar í apríl að leggja próf fyrir nemendur sem eru að ljúka námi eftir þriggja ára nám og þá sem eru að ljúka námi eftir fjögurra ára nám. Prófað verður í íslensku og stærðfræði.

„Við tókum ákvörðun og lögðum mikla vinnu í að stytta námið um eitt ár. Nú er komið að því að fyrsti árgangurinn er kominn í gegnum allt og við útskrifum núna næstum helming allra nemenda skólans, 540 nemendur,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskólans. Ingi segir að skólinn hefði helst viljað fá utanaðkomandi aðila til að vinna verkefnið.

„Það er alltaf hætta á að hverjum þyki sinn fugl fagur. Ég hafði áhyggjur af því að við sæjum ekki veikleikana sjálf og svo framvegis,“ segir Ingi.

Ingi ÓlafssonVísir/VALLI
Það hafi aftur á móti ekkert komið frá ráðuneytinu varðandi þetta. 

„Menntamálastofnun ætlaði að gera það en svo hættu þeir við. Það sem þeir gera hins vegar er að þeir láta okkur í té gömul próf. Við fáum aðgang að prófabanka hjá þeim,“ segir Ingi.

Kennarar skólans muni þá velja úr þessum banka og búa til próf fyrir nemendur í íslensku og stærðfræði. 

„Þetta á að leggja fyrir báða árgangana og reyna að meta hvort þau standi jafnfætis í þessu,“ segir Ingi. Til viðbótar mun skólinn vera með rýnihópa þar sem talað er við nemendur sem eru að ljúka þriggja ára náminu og hugsanlega líka einhverja sem eru að ljúka fjögurra ára náminu. 

„Svo verðum við með rýnihópa þar sem talað verður við kennara,“ segir Ingi og bætir við að sérfræðingar hjálpi til við verkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×