Fótbolti

Messi skoraði mark númer 500 í sigri á Sevilla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi skoraði og lagði upp í kvöld.
Lionel Messi skoraði og lagði upp í kvöld. vísir/afp
Barcelona minnkaði forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í tvö stig með 1-2 sigri á Sevilla í kvöld.

Leikurinn var frábær skemmtun og Börsungar þurftu svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum gegn sterku liði Sevilla sem tapaði aðeins sínum öðrum deildarleik í kvöld.

Vitolo kom Sevilla yfir á 15. mínútu. Hann slapp þá í gegnum vörn Barcelona eftir stungusendingu Pablo Sarabia og skoraði af öryggi.

Tveimur mínútum fyrir hálfleik var komið að Lionel Messi. Argentínumaðurinn skoraði þá með nákvæmu skoti frá vítateigslínu eftir sendingu frá Neymar. Þetta var hans fimmhundruðasta mark fyrir Barcelona í aðeins 592 leikjum.

Messi var svo aftur á ferðinni á 61. mínútu þegar hann fann Luis Suárez sem skoraði framhjá Sergio Rico í marki Sevilla. Þetta var áttunda mark Úrúgvæans á tímabilinu en hann er markahæstur í spænsku deildinni ásamt Messi.

Fleiri urðu mörkin ekki og Börsungar fögnuðu góðum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×