Fótbolti

Messi giftir sig á 30 ára afmælisdaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messi ætlar að gifta sig í sumar.

Þann 24. júní verður Messi þrítugur og þá ætlar hann að ganga að eiga unnustu sína, Antonellu Roccouzzo.

Brúðkaupið fer fram í Rosario, heimaborg hjónanna tilvonandi. Búist er við því að í kringum 600 manns verði boðið í brúðkaupið sem verður væntanlega hið glæsilegasta.

Messi og Roccouzzo hafa verið saman frá árinu 2008. Þau eiga tvo drengi saman; Thiago (fæddur 2012) og Mateo (fæddur 2015).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×