Fótbolti

Messi eyðilagði heimkomu Guardiola

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lionel Messi fór illa með sinn gamla læriföður, Pep Guardiola, er Guardiola mætti með Man. City á sinn gamla heimavöll, Camp Nou.

Barcelona skellti Man. City, 4-0, og Lionel Messi skoraði þrennu í leiknum. Neymar skoraði  fjórða markið en hann var þá nýbúinn að klúðra vítaspyrnu.

Barcelona er með fullt hús, 9 stig, í C-riðli en City er með fjögur stig.

Fyrsta mark leiksins má sjá hér að ofan en hin hér að neðan.

2-0 fyrir Barcelona. Messi fullkomnar þrennuna. Neymar varð að skora líka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×