Innlent

Með vélarvana bát í togi á leið til Vopnafjarðar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Báturinn verður dreginn til hafnar í Vopnafirði.
Báturinn verður dreginn til hafnar í Vopnafirði. vísir/pjetur
Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson frá Vopnafirði sótti vélarvana bát sem staddur er skammt austur af Bjarnarey nú rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Ekki er talin mikil hætta á ferðum fyrir skipverjann um borð en bátinn rekur frá landi.

Björgunarskipið lét úr höfn um klukkan hálf þrjú og mun draga bátinn til hafnar í Vopnafirði, samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitinni Vopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×