Innlent

Með Byrjendalæsi batnaði lestrarárangur í slökustu skólunum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Margir reykvískir skólar tóku að nýta sér Byrjendalæsi eftir að árangur nemenda í lestri í fyrstu fjóru skólunum í borginni sem nýttu sér aðferðina batnaði til muna.

„Í Reykjavík fóru fyrstu skólarnir að nota Byrjendalæsi skólaárið 2008-2009, alls fjórir skólar, sem sérstaklega tóku þessa aðferð upp vegna þess að staða nemenda í lestri var töluvert lakari en að meðaltali í Reykjavík.  Þremur árum síðar hafði árangur nemenda í lestri í þessum fjórum skólum í lestrarskimuninni Læsi batnað verulega eða úr því að 48% nemenda lásu sér til gagns í 62%. Munur á meðaltali þessara skóla á samræmdum prófum í íslensku í 4. bekk og annarra skóla í Reykjavík fór úr 2,0 í 0,2 á þessum sama tíma. Í nýjustu lesskimun sem fram fór í Reykjavík í vor voru 3 af þessum 4 skólum fyrir ofan meðaltal Reykjavíkur.“ Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Reykjavíkurborgar.

„Námsárangur er flókið samspil margra áhrifaþátta í námsumhverfi og bakgrunni nemenda og því hefur það ekki komið skóla- og frístundasviði á óvart að árangur skóla í Byrjendalæsi í Reykjavík sé sveiflukenndur eins og árangur þeirra skóla sem beitt hafa öðrum aðferðum.“

Skóla- og frístundasvið hefur aðallega nýtt lesskimunina Læsi, lestrarskimun í 1. og 2. bekk til þess að fylgjast með framförum þeirra grunnskóla sem hafa nýtt sér Byrjendalæsi.

„Reykjavíkurborg hefur metið alla grunnskóla borgarinnar með ytra mati á undanförnum árum. Ein af niðurstöðum þess er að fjölbreyttar kennsluaðferðir og markviss samvinna nemenda og sjálfstæði í námi einkenna þá skóla sem ná hvað mestum árangri. Mikilvægt er að kennarar fái endurgjöf á störf sín og þar með hvatningu til að gera sífellt betur og auka fjölbreytni í kennsluháttum. Almenn og opin umræða um leiðir til þess að auka fjölbreytni kennsluhátta ásamt umræðu um hvernig auka má virkni nemenda og aðild þeirra að leiðum í námi og kennslu er því sérlega mikilvæg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×