Lífið

Með betri söngvurum sem Bubbi hefur heyrt í lengi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hin 21 árs gamla Alda Dís Arnarsdóttir frá Hellisandi á Snæfellsnesi sýndi sína frábæru sönghæfileika í Ísland Got Talent í kvöld. Hún byrjaði flutninginn rólega en fór svo sannarlega á flug og má gera ráð fyrir því að þeir sem ljá henni eyra fái gæsahúð.

Einn af dómurunum, Jón Ragnar Jónsson sagði meðal annars að ef hann væri á brimbretti þá myndi hann óska þess að Alda Dís væri aldan sem myndi bera hann og hans brimbretti um sæinn.

Dómararnir voru aldeilis sáttir með frammistöðu hennar og Bubbi sagði hana vera með betri söngvurum sem hann hefur heyrt í lengi.

Upptöku af flutningnum má sjá hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×